Um Sigurlín

Ég hef verið skyggn Sjáandi, og átt samskipti við framliðna, svo lengi sem ég man eftir mér.

Reynsla margra sem hafa ófreskigáfu er sú að umhverfi okkar kennir okkur að fela hæfileikana og jafnvel bæla þá. Þegar ég var átján ára hætti ég að berjast gegn hæfileikum mínum eða bæla þá niður.

Við tók margra ára leit að svörum og skilningi eins og títt er. Í átta ár starfaði ég sem Transmiðill bæði með hópafundi og einstaklingsfundi. Í gegnum árin hefur Spámiðill verið ríkur þáttur í mínu starfi og er ég skráð sem heilari og spámiðill hjá Sálarrannsóknafélagi Suðurlands.

Mikið hefur verið leitað til mín í gegnum árin, bæði fólk sem þarf svör frá spámiðlinum og fólk sem þarf skilaboð að handan. Eins og títt er hefur gengið á ýmsu á þessari braut og ég lært margt. Fór ég fljótlega að gefa mig að heilun og fyrirbænum.

Síðustu árin hafa læknar að handan komið ítrekað til mín og hjálpað fólki sem til mín hefur leitað um hjálp. Hefur þessi þáttur miðilsstarfs míns aukist svo og styrkst að í dag vinn ég svo til eingöngu við heilun og læknamiðlun. Í því starfi eru einir fimm læknar sem starfa með mér að handan.

Nú starfa ég á hverjum miðvikudegi í „Gjafir jarðar“ í Reykjavík en tek einnig tíma á suðurlandi.

Share