Heilun er fyrst og fremst kærleikur. Fólk pantar tíma hjá heilara ef viðkomandi á í erfiðleikum og þráir að líða betur. Yfirleitt finnur það strax til aukinnar vellíðunar.
Heilari er manneskja sem tengir á milli fyrir lækna sem starfa að handan. Heilari flytur aldrei skilaboð á meðan heilunin sjálf fer fram.
Heilari tengir sig við andann og lætur ljósið streyma í gegn til þess sem heilunina fær. Heilunin sjálf stendur yfir í 10 til 20 mínútur.
Share
Sæl og blessuð Sigurlin
Mig langar aðalega til að miðla reynslu minni hér og segja frá því hvernig ég var og svo eftir að hafa komið til þin i 2 skipti, reynslan er hreint út sagt ótrúleg, mín saga er svona,
Ég er búin að vera með mikla bakverki og mjaðmagrindin nánast ónýt eftir barnsburði og svo greyndist ég með psoriasisgigt fyrir 2 árum siðan,ég hef verið með stöðuga verki siðan mis slæm og mis góð, ég sá myndband á visi viðtal við þig og þa var mer hreint og beint sagt að ég ætti að hafa samband við þig, ég áhvað að hafa samband ég myndi EKKI tapa á þvi þar sem ég hafði nú gert allt til láta mer líða betur,jákvæðar hugsannir, verkjatöfluát ,pollyönnuleikir og svoleiðis, ég kom til þin first fyrir hálfum manuði þung og með mikla verki,en i heilunnar timanum var fólkið þitt augljoslega að hjálpa mér mjög mikið, ég hef bara aldrei trúað þvi að þetta væri svona eins go raun ber vitni ég hef bara ekki fundið til siðan og ekki þotti mér það nú verra að fá kökuuppskriftina góðu af drauminum að handan vá hvað hun er góð,
mig langar að þakka þér og ykkur öllum sem veittuð mér þann munað að verða verkjalaus nánst að öllu leiti ég kom i annað skiptið til þin i dag og ég get sagt nánast sömu reynslu ofboðslegur friður sem vakir yfir mér og enn verkjalaus,Ég hef sko engu tapað hef allt að græða á þvi að mæta i heilun og mér persónlega finnst að allir ættu að prufa enn og aftur takk fyrir mig þið eruð yndisleg.
Hér er uppskriftin af draumi að handan
300 gr suðusukkulaði
50 gr smjör
1 1/2 tsk vannilludropar
þetta brætt saman og blandað vel saman
300 gr Hveiti
125 gr sykur krem
4 stk Egg 3 pipp karmellu súkkulaði
1 tsk matarsóti 4 msk rjómi
2 tsk lyftiduft brætt saman
4-5 bollar mjólk
þurrefnum blandað saman og eggjum og mjólkinni bætt út í og hræt vel saman þegar deigið er vel blandað saman er súkklaðinu blandað hægt en velsaman og sett i ofnskúffu eða i eldfast form
sett í miðjan ofninn við 125°c i sirka 50 min
njótið vel gott er að hafa vannillu ís eða þeittan rjóma með
kökunni.
Enn og aftur hjartans þakkir fyrir mig með kærri þökk og innilegri kveðju Finndís