Það er misjafnt hverju við trúum. Sumir trúa á sjálfa sig, aðrir trúa á Guð eða Jesú, og allt þar á milli. Mér er sama á hvað þú trúir en við verðum öll að trúa á eitthvað sem er meira en við sjálf.
Ég hef kærleikann að leiðarljósi í minni trú. Eins og segir í 13. kafla Korintubréfsins, er kærleikurinn mestur.
Hér á eftir læt ég fylgja 13. kaflann í heild sinni.
Korintubréf kafli 13
- 1 Þótt ég talaði tungum manna og engla,en hefði ekki kærleika,væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla. 2 Og þótt ég hefði spádómsgáfu og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking, og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað,en hefði ekki kærleika,væri ég ekki neitt.
- 3 Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum,og þótt ég framseldi líkama minn, til þess að verða brenndur,en hefði ekki kærleika,væri ég engu bættari.
- 4 Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður.Kærleikurinn öfundar ekki.Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
- 5 Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
- 6 Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum.
- 7 Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
- 8 Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok, og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok. 9 Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum. 10 En þegar hið fullkomna kemur, þá líður það undir lok, sem
- er í molum.
- 11 Þegar ég var barn, talaði ég eins og barn, hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn. En þegar ég var orðinn fulltíða maður, lagði ég niður barnaskapinn.
- 12 Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu, en þá munum vér sjá augliti til auglitis.
- Nú er þekking mín í molum, en þá mun ég gjörþekkja, eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn.
- 13 En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur.
Þessi tilvitnun er fengin að láni frá Netútgáfunni.
Share
Gangi þér þetta starf allt í haginn en ég á raunmynd af orkunni þeirra og tengingu inn á heimasíðunni minni
kveðja
þg
sæl veriði, ég það var magnað sem mamma mín sá; mamma mín sá systur sína í aðgerðinni, mömmu fannst þetta vera systir sín.
þvílik kraftaverk. kv ingi hrafn