Hvernig vinnur læknamiðill
Skjólstæðingurinn leggst á bekk. Miðillinn fer afsíðis í fáeinar mínútur. Á róar skjólstæðingurinn og aðlagast þeirri orku sem þeir að handan þurfa til að geta skoðað. Þegar miðillinn kemur inn aftur, veit hann að mestu hvar skjólstæðingurinn finnur til og getur unnið með það.
Oftast notar miðillinn hendurnar til að nálgast orkuflæði skjólstæðings og er þá yfirleitt unnið frá fótum og upp eftir líkamanum. Jafnframt er miðlað þeim skilaboðum sem læknirinn að handan vill koma áleiðis.
En læknamiðill er sá sem flytur skilaboð til einstaklings frá læknum sem farnir eru. Eru þeir fimm sem starfa í gegn hjá mér og eru þrír þeirra íslenskir en ég má ekki gefa upp eftirnöfn þeirra.
Halldór var heimilislæknir og búinn að vera með mér í fjölda ára. Mjög traustur og áreiðanlegur.
Magnea var gigtarlæknir.
Gunnar var Barnalæknir.
Húðsjúkdómalæknir, var frá Kína.
Skurðlæknir, var frá bandaríkjunum.
Hvernig er unnið með fyrirbænir
…
Hvernig vinnur spámiðill
Spámiðill vinnur yfirleitt með einhver hjálpartæki sem auðvelda skjólstæðingi og miðli að tengja sig saman. Algengt er að nota Tarot spil í þessum tilgangi.
Share